Yfir 70% 9 ára barna eiga farsíma og 54% þeirra eiga leikjatölvu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Fjölmiðlanefndar.75% stúlkna í framhaldsskóla segjast eyða miklum tíma á netmiðlum en hlutfallið er 66% hjá strákum.Könnunin var lögð fyrir nemendur í 59 grunnskólum og 24 framhaldsskólum í september. Yngstu þátttakendurnir voru nemendur í 4.bekk.Þetta er í þriðja sinn sem þessi rannsókn er framkvæmd.Yfir 40% barna frá 11 ára aldri segja foreldra sína hjálpa sér að stofna reikning á samfélagsmiðlum, jafnvel þótt miðlarnir séu bannaðir yngri en 13 ára. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn. HLUTFALL ÞEIRRA SEM EIGA FARSÍMA HEFUR LÆKKAÐ Málþing um samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna var í Hátíðarsal