Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur boðist til að annast öflun sérfræðiálits um gagnsemi varnargarða við Grindavík og Svartsengi. Lagt verður mat á hvaða hagsmunum hafi verið bjargað með gerð þeirra og hvernig slík skipulögð forvörn geti dregið úr tjónskostnaði í hamförum af sama toga. Vegna þessa hefur fjármála- og efnahagsráðherra fallið frá kröfu um að matsmenn yrðu dómkvaddir til þess að meta hversu miklum verðmætum garðarnir hafa bjargað.