Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bíll valt eftir árekst­ur í Ár­túns­brekku

Bifreið valt á hliðina eftir árekstur í Ártúnsbrekku, segir varðstjóri stoðdeildar hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann lýsir árekstrinum sem minni háttar og segir ökumann bílsins hafa komist út úr honum upp á eigin spýtur.Sjúkrabíll og dælubíll voru sendir á vettvang slyssins. Enginn hefur þó verið fluttur á sjúkrahús frá slysstað, segir varðstjórinn.Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að umferðartafir muni vara á meðan viðbragðsaðilar starfa á vettvangi. Vonandi verði umferð um Ártúnsbrekkuna komin í eðlilegt horf upp úr korter yfir 16:00.Mynd úr safni.RÚV / Ragnar VisageFréttin hefur verið uppfærð.
Bíll valt eftir árekst­ur í Ár­túns­brekku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta