Hagfræðingar vara við efnahagslegum áhrifum verði frumvarp um almannatryggingar að lögum.Önnur umræða um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitöluheldur áfram í dag. Umræðan hófst fyrir viku en í gær var tekist hressilega á um frumvarpið.Vísitölutenging bóta er eitt af forgangsmálum Ingu Sæland og Flokks fólksins og í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar var tekið fram að hækka ætti örorku- og ellilífeyri á hverju ári til samræmis við hækkun launavísitölu en þó aldrei minna en verðlag. Hingað til hafa greiðslur almannatrygginga verið tengdar við vísitölu neysluverðs. Með þessum breytingum á að draga úr hættu á að lífskjör bótaþega dragist aftur úr öðrum hópum. GAGNRÝNI AÐILA VINNUMARKAÐARINS Frumvarpið hefur sætt gagnrýni þar sem bæði Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Ísland