Seamus Culleton er írskur en hefur búið í Bandaríkjunum í nærri 20 ár og eiginkona hans, Tiffany Smyth, er bandarísk. Hann hefur verið í haldi innflytjendastofnunar Bandaríkjanna, ICE, í fimm mánuði og biðlar til írskra stjórnvalda um aðstoð.Þann 9. september var Culleton tekinn af ICE-liðum og síðar fluttur á varðhaldsstöð í Texas, nærri fjögur þúsund kílómetrum frá heimili hans í Boston.Í viðtali við írska ríkissjónvarpið RTÉ sagðist hann óttast um líf sitt. „Þú veist aldrei hvað gerist. Þú veist ekki hvort það verða óeirðir. Þetta er martröð,“ sagði Culleton.Hann segist hafa verið lokaður inni í sama rýminu í fjóra og hálfan mánuð. „Ég hef varla fengið að fara út, ekkert frískt loft, engin sól. Það eru tvö sjónvörp og við erum 72 alls. Við fáum þrjár afar litlar máltíðir á dag, skammta