Perúmaður á áttræðisaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á rúmum 2,5 kílóum af kókaíni. Í ákæru frá skrifstofu héraðssaksóknara segir að kókaínið, með styrkleika 86-88%, hafi verið ætlað til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.Þar segir að ákærði hafi flutt efnin til landsins, falin í ferðatösku, með farþegaflugi frá Amsterdam 20. nóvember 2025. Ákærði flutti síðan ferðatöskuna í hótelherbergi á Hótel Cabin í Borgartúni til geymslu þar til kvöldið á eftir.„Þá kom tilgreindur aðili á hótelið og veitti fíkniefnunum viðtöku,“ segir í ákærunni. Sá flutti fíkniefnin í íbúð í Bríetartúni þar sem lögregla lagði hald á þau.Ákærði fékk greiddar 8.000 evrur fyrir innflutning kókaínsins.Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refs