Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tíminn á þrotum fyrir vannærð börn í Súdan

Sameinuðu þjóðirnar segja að tíminn sé að renna út fyrir vannærð börn í Súdan og hvetja heiminn til þess að hætta að horfa fram hjá vandanum. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna vöktu athygli á því í liðinni viku að hungursneyð væri að aukast í vestanverðu Darfur-héraði í Súdan. Milljónir væru hungraðar, á flótta og kæmust ekki í neyðaraðstoð sökum átaka milli súdanska hersins og vígasveita.Í hluta Norður-Darfur er meira en helmingur allra barna alvarlega vannærður, sagði Ricardo Pires, talsmaður UNICEF, á blaðamannafundi í Genf í dag. Alvarlegt hungur og vannæring sjáist fyrst hjá börnum og það sé að aukast í Súdan. Hiti, niðurgangur, öndunarfærasýkingar, lágt hlutfall bólusetninga, óhreint vatn og lélegt heilbrigðiskerfi valdi því að sjúkdómar sem alla jafna sé auðvelt að meðhöndla verði ban
Tíminn á þrotum fyrir vannærð börn í Súdan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta