Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hófu þingfund á að deila um dagskrána

Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu tillögu um að frumvarp um afturköllun alþjóðlegrar verndar skyldi tekið fram fyrir umræður um almannatryggingar á þingfundi í dag.Frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun verndar er fimmta mál á dagskrá fundarins, á eftir frumvarpi félagsmálaráðherra um almannatryggingar sem mjög hefur verið deilt um. Var það vilji stjórnarandstöðunnar að víxla þessum málum.Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins sagði að málið hafi ítrekað verið sett aftast á dagskrá á eftir þungum málum og þar af leiðandi hafi það ekki komist að. Bent var á að undir þinghlé í desember hafi meirihlutinn skyndilega lagt mikla áherslu á að ná frumvarpi um afturköllun verndar í gegn og því sæti það furðu að meirihlutinn dragi lappirnar ítrekað að klára málið. ÁSAKANIR UM LEIKÞÆTTI Á VÍXL
Hófu þingfund á að deila um dagskrána

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta