Paul Thomas Anderson kvikmyndaleikstjóri og Jonny Greenwood, meðlimur Radiohead, fara fram á að tónverk verði fjarlægð úr heimildarmyndinni Melaniu. Heimildarmyndin hefur verið umdeild en hún fjallar um Melaniu Trump, forsetafrú Bandaríkjanna.Greenwood samdi tónlistina upphaflega fyrir kvikmynd Andersons, Phantom Thread, sem var gefin út árið 2017. Variety greinir frá.„Þó að Jonny Greenwood eigi ekki höfundarrétt að tónverkinu þá ljáðist Universal að ráðfæra sig við Jonny um notkun á því fyrir þriðja aðila, sem er brot á samningi hans. Vegna þessa hafa Jonny og Paul Thomas Anderson beðið um að tónverkið verði fjarlægt úr heimildarmyndinni,“ segir í yfirlýsingu frá samstarfsfélögunum.Þeir Anderson og Greenwood hafa unnið saman að fjölda verkefna. Anderson hefur leikstýrt nokkrum tónlistarmy