Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Áform Ísraels á Vesturbakkanum mæta andstöðu

Ísraelsk stjórnvöld ætla að taka yfir enn meira landsvæði á Vesturbakkanum og koma upp fleiri landtökubyggðum á palestínsku landi. Bandaríkin, Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar styðja ekki áformin.Öryggisráð ísraelskra stjórnvalda, sem forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú leiðir, samþykkti þessi áform og kynnti á sunnudag. Gangi þau eftir herða ísraelsk stjórnvöld tökin á Vesturbakkanum og ryðja veginn fyrir enn fleiri landtökubyggðir.Samkvæmt Oslóarsamkomulaginu skiptist Vesturbakkinn í þrjú svæði. Svæði A sem Palestínumenn eiga að ráða yfir, B þar sem Palestínumenn og Ísrael eiga að fara með sameiginlega stjórn og loks C sem Ísraelar ráða yfir, það er um 60 prósent af Vesturbakkanum og þar er fjöldi ísraelskra landtökubyggða sem eru ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum.Bezalel Smotrich,
Áform Ísraels á Vesturbakkanum mæta andstöðu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta