Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, og Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, mættust í Silfrinu í gærkvöldi. Þær fóru yfir áherslur sínar í stjórnmálum í aðdraganda formannskjörs flokksins, sem verður á flokksþingi um helgina.„Við sem persónur erum mjög ólíkar. Þó við séum nú í sama flokki og aðhyllumst sömu hugsjónir er bakgrunnurinn ólíkur,“ segir Ingibjörg. Hún segist brenna fyrir hagsmunum landsbyggðarinnar og að þar megi ýmislegt bæta. Þá hafi þær ólíkar nálganir á hvernig megi byggja flokkinn upp.Lilja segir meira sameina þær en skilja þær að. Hún leggur mikla áherslu á efnahags- og alþjóðamálin. „Ég brenn fyrir það að flokkurinn okkar nái aftur vopnum sínum og ég tel að það sé í raun og veru kostur eins og staðan er í dag,“ segir Lilja.