„Núna er komið að því að þetta er ekki lengur mögulegt vegna þess að það eru svo margir. Á Selfossi og í kringum Selfoss eru fleiri en þúsund kaþólskir,“ segir David B. Tencer, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, í samtali við Önnu Gyðu Sigurgísladóttur í Meiningu á Rás 1. Byggingu á nýrri kirkju lýkur á Selfossi síðar á þessu ári.Kaþólski söfnuðurinn á Suðurlandi hefur verið án eiginlegrar kirkju í meira en áratug og hefur flakkað úr einu leiguhúsnæði yfir í annað. Um þessar mundir heldur söfnuðurinn messur sínar í tveggja hæða íbúðarhúsi við Smáratún 12 á Selfossi sem kirkjan festi kaup á fyrir nokkrum árum.Byggingu nýrrar kirkju lýkur á þessu ári en fyrirhugað er að opna hana í september. Nýja guðshúsið ber heitið Kirkja hins heilaga kross og er tileinkað kirkjunni í Kaldaðarnesi sem