Bæjarráð Garðabæjar veitti Almari Guðmundssyni bæjarstjóra í morgun umboð til að semja við ríkið um eignaskipti sem eru forsenda fyrir því að langþráð meðferðarheimili verði reist í bænum.Viljayfirlýsing um meðferðarheimili fyrir fimmtán til sautján ára börn var undirrituð 2018 og þá var stefnt að því að framkvæmdir hæfust 2020. Ekkert hefur orðið af því en nú virðist sem styst geti í framkvæmdir.Bæjarráð Garðabæjar samþykkti í morgun að bæjarstjóri semji við fjármála- og efnahagsráðuneytið um að ríkið afsali sér Sunnuhvoli, sem stendur við Spítalaveg 2, og fái í staðinn lóðina Friðarvelli með byggingarheimildum í endurgjald. Bæjarráð samþykkti um leið að hefja undirbúning gatnaframkvæmda vegna byggingaráformanna.