Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Innkalla fisk í raspi og fiskistangir

Fiskur í raspi og fiskistangir frá Grími kokki hafa verið innkallaðar vegna gruns um listeríu. Fiskurinn og fiskistangirnar sem eru innkallaðar eru með best fyrir-dagsetninguna janúar 2027. Fólk sem á þessi matvæli er hvatt til að skila þeim eða fá þeim skipt í þeim búðum þar sem þau voru keypt. Haft hefur verið samband við verslanirnar og þær beðnar um að taka fisk í raspi og fiskistangir með þessum dagsetningum úr hillum. Listería getur valdið hita, vöðvaverk, höfuðverk, ógleði, uppköstum og niðurgangi, allt frá nokkrum klukkustundum eftir neyslu upp í næstu tvær til sex vikur.Fiskur í raspi frá Grími kokkiGrímur kokkur
Innkalla fisk í raspi og fiskistangir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta