Bandaríkjamenn eru fjölmennastir á lista yfir þá sem fengið hafa leyfi dómsmálaráðuneytisins til að kaupa hér fasteign. Fasteignakaup útlendinga eru aðeins brotabrot af íslenskum markaði, segja fasteignasalar. ÁBERANDI KAUP SEM RATA Í FJÖLMIÐLA Öðru hvoru rata í fréttir sögur af erlendum auðkýfingum sem kaupa hér eignir fyrir mörg hundruð milljónir. Nefna má sumarhúsið í Kiðjabergi sem seldist á sjö hundruð milljónir, kaup kanadískra hjóna á jörðinni Horni í Skorradal þar sem fjallið Skessuhorn fylgdi með í kaupunum og 270 fermetra sumarhús rétt fyrir utan Stykkishólm sem bresk hjón létu byggja og fylgst var með í sjónvarpsþáttunum Gulli Byggir.Það er ekkert sér-íslenskt að fasteignakaup útlendinga rati í fjölmiðla; í Danmörku var töluvert fjallað um kaup bandarísk-bresku leikkonunnar L