Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Eins árs rann­sókn lauk með ellefu hand­tökum á Ís­landi

Ellefu voru handteknir á Ísland þann 4. febrúar síðastliðinn í alþjóðlegum lögregluaðgerðum sem snúa að því að uppræta fjölþjóðlegan skipulagðan brotahóp í tengslum við umfangsmikinn innflutning á fíkniefnum frá Suður-Ameríku til Evrópu, aðallega kókaíni. Aðgerðir voru samræmdar á Íslandi, Litháen og á Spáni með stuðningi Evrópulögreglunnar Europol og EUrojust. Talið er að brotahópurinn hafi hagnast um fjórar milljónir evra með stórfelldu smygli eða um sex hundruð milljónir króna.
Eins árs rann­sókn lauk með ellefu hand­tökum á Ís­landi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta