Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ellefu handteknir á Íslandi í stórri aðgerð Europol í fimm löndum

Lögreglustofnanir víða í Evrópu tóku þátt í að uppræta fíkniefnahring sem smyglaði miklu magni kókaíns milli landa. 24 voru handteknir í aðgerðunum. Þar á meðal voru ellefu á Íslandi. Sex voru handteknir í Litháen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku.Europol tilkynnti um aðgerðirnar í dag. Þar kemur fram að glæpagengi sem teygði anga sína frá Suður-Ameríku til Evrópu hafi verið upprætt. Það notaði burðardýr til að smygla kókaíni milli landa og reyndi þannig að koma í veg fyrir að lögregla kæmist á snoðir um skipuleggjendur smyglsins.Lögregla á Íslandi, Litháen og Spáni rannsakaði glæpagengið í samvinnu við Europol og Eurojust. Sú rannsókn leiddi í ljós að kókaíni var smyglað frá Suður-Ameríku til Íslands í gegnum Spán. Alla jafna voru fíkniefnin í eins kílóa pakkningum sem fa
Ellefu handteknir á Íslandi í stórri aðgerð Europol í fimm löndum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta