Silja Sóley Birgisdóttir stuðningsfulltrúi skipar efsta sæti á lista Sósíalistaflokks Íslands fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Sigrún E. Unnsteinsdóttir athafnakona verður í öðru sæti og Hannes Pétursson verslunarmaður í því þriðja.Flokkurinn kynnti tíu efstu sæti á lista flokksins í dag.Miklar breytingar verða á framboðslistanum milli kosninga. Enginn borgar- og varaborgarfulltrúa flokksins sem náðu kjöri síðast býður fram á listanum. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, sem skipaði fimmta sætið fyrir fjórum árum, er í fjórða sæti að þessu sinni.Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti flokksins á kjörtímabilinu, hefur boðað framboð með Vinstri grænum undir heitinu Vor til vinstri.Í tilkynningu Sósíalistafélags Reykjavíkur, sem býður listann fram, segir að stórátak þurfi til að leysa húsnæðiskr