Samkvæmt dánarvottorði lést kanadíska leikkonan Cathrine O'Hara úr blóðtappa. Hún fékk blóðtappa í lungun og lést í Los Angeles þann 30. janúar.Að auki kemur fram á dánarvottorðinu að O'Hara var með krabbamein í endaþarmi. Hún hafði verið í meðferð við því frá mars 2025. Mikill fjöldi samferðamanna hefur minnst O'Hara eftir andlát hennar. O'Hara á farsælan feril að baki, bæði í kvikmyndum og sjónvarpi.Í kvikmyndinni vinsælu Home alone, sem kom út í byrjun tíunda áratugarins, lék hún móður aðalsöguhetjunnar og grallarans, Kevin McCallister, sem leikinn var af Macaulay Culkin.Culkin birti hjartnæma kveðju á samfélagsmiðlum eftir fráfall O'Hara. „Mamma, ég hélt að við hefðum meiri tíma,“ skrifaði Culkin við myndir af þeim saman.O'Hara lék hún einnig í költ-kvikmyndinni Beetlejuice árið 1988 o