Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Með alvarlega áverka eftir líkamsárás á þorrablóti

Maður varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Þorrablóti HK í lok janúar. Þegar viðbragðsaðila bar að garði reyndist maðurinn með mjög alvarlega áverka og var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar. DV greindi fyrst frá.Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglu.Árásarmaðurinn var handtekinn og sat í gæsluvarðhaldi í tvo sólarhringa. Hann var látinn laus að lokinni skýrslutöku.Elín Agnes segir málið til rannsóknar hjá lögreglu en að öðru leyti vildi hún ekki tjá sig frekar. Aðspurð sagðist hún ekki vilja fara út í það hvernig þeim sem varð fyrir árásinni reiðir af eða hvort hann sé enn á spítala.
Með alvarlega áverka eftir líkamsárás á þorrablóti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta