Héraðssaksóknari hefur ákært fjóra karlmenn fyrir fíkniefnasmygl, peningaþvætti, vopnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi.Samkvæmt ákæru voru þrír mannanna staðnir að því að smygla tæpum níu kílóum af marijúana frá Bandaríkjunum í pökkum undan morgunkorni. Tveir þeirra og fjórði maðurinn voru ákærðir fyrir að smygla rúmlega ellefu kílóum af marijúana í sófa sem var sendur hingað frá Bandaríkjunum. FUNDU KYLFU OG AXIR HJÁ TVEIMUR MANNANNA Auk þessa voru tveir menn ákærðir fyrir vopnalagabrot; annar var með kylfu og tvö rafvopn í sinni vörslu en hinn með tvær axir.Einn maðurinn var einnig ákærður fyrir að hafa kannabisblandaðan vökva, kannabisblandað efni og marijúana í vörslu sinni. Hann sætir líka ákæru fyrir peningaþvætti með því að móttaka rúmar átján milljónir króna inn á bankareik