Allt frá því að gríðarstór skriða féll í Hítará árið 2018 hefur verið rætt um hvort tilefni sé til að endurheimta fyrri farveg árinnar. Skriðan er farartálmi fyrir laxa á leið heim á hrygningarstöðvarnar og nýi farvegurinn er torfær fyrir laxinn. Kostnaðurinn við að grafa gegnum skriðuna gæti hlaupið á hundruðum milljóna en fyrir landeigendur í dalnum eru talsverðir hagsmunir í húfi.Skriðan sem féll í Hítardal er sú stærsta sem fallið hefur frá landnámi, rúmur kílómetri á breidd og rann fram um einn og hálfan kílómetra. Hún fyllti ána og meira til svo vatnið úr Hítarvatni þurfti að finna nýjan farveg. Fyrir ofan skriðuna myndaðist lónið Bakkavatn og um sex kílómetrar af farvegi Hítarár er þurr meðan vatnið rennur í hliðaránni Tálma. Fyrir laxinn í ánni og veiðimennina sem borga hátt verð f