Fjármála- og efnahagsráðherra segir markmið ríkisstjórnarinnar að stuðla einföldun regluverks og að það eigi að vera einfalt fyrir venjulegt fólk að fjárfesta sparnaði sínum á Íslandi, enda hafi þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði ýmislegt jákvætt í för með sér. „Við ætlum að hætta að ýta sparnaði fólks yfir í steinsteypu. Einhvern veginn höfum við endað í kerfi, þar sem stuðningur hins opinbera snýst fyrst og fremst að því að styðja við íbúðafjárfestingar. Það er ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir.“