Allt virðist dottið í dúnalogn eftir jarðskjálftahrinu síðustu sólarhringa þar sem hundruð jarðskjálfta mældust við Eldey á Reykjaneshrygg. Flestir skjálftarnir voru smáir en þó nokkrir mældust yfir þremur að stærð. Sá stærsti, af stærðinni 3,4, skók hafsbotninn á sunnudaginn. Sigríður Magnea Óskarsdóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir útlit fyrir að hrinunni sé lokið.„Það hefur dregið verulega úr hrinunni í gærkvöldi. Engir skjálftar hafa mælst eftir miðnætti þannig að hrinunni er lokið, allavega í bili, en hún getur nú alveg tekið sig upp að nýju.“ Er eitthvað hægt að lesa í þetta? „Nei, mest lítið. Hrinur eru mjög algengar á þessu svæði. Við fengum svipaða hrinu núna í byrjun árs og aðra í desember.“ Er eðlilegt að allt detti í dúnalogn allt í einu? „Já, bara alveg ei