Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stórsigur flokks Takaichi forsætisráðherra staðfestur

Stórsigur flokks japanska forsætisráðherrans Sanae Takaichi í þingkosningum um helgina var staðfestur í morgun. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn fær tvo þriðju sæta í neðri deild þingsins eða 315 þingmenn af 465, samkvæmt tölum landskjörstjórnar.Takaichi boðaði til skyndikosninga snemma árs, fáeinum mánuðum eftir að hún varð forsætisráðherra, fyrst japanskra kvenna. Henni hefur tekist það markmið að ná meirihluta á þinginu til að ná fram stefnumiðum sínum á borð við skattalækkanir, aukin opinber útgjöld og nýja varnarstefnu.Útgönguspár og fyrstu tölur bentu til sigurs flokksins, sem hefur verið við völd nánast óslitið áratugum saman.Fylgið hefur dalað talsvert síðustu ár vegna ýmissa innanmeina flokksins og spillingarmála sem hafa skekið japanskt samfélag. Tveir forverar Sanae Takaichi í lei
Stórsigur flokks Takaichi forsætisráðherra staðfestur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta