Fjórir bandarískir öldungadeildarþingmenn sem funduðu með grænlensku landstjórninni um helgina eru á einu máli um að virða beri sjálfsákvörðunarrétt landsins og fullveldi danska konungdæmsins. KNR fjallaði um málið.Þingmennirnir sögðu Grænland og Bandaríkin vera samherja á mörgum sviðum og því væri nauðsynlegt að endurreisa traustið sem þvarr eftir hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku Grænlands með valdi.Angus King, óháður þingmaður fyrir Maine, sagði á sameiginlegum blaðamannafundi að meirihluti Bandaríkjaþings væri á sama máli. Demókratarnir Gary Peters og Maggie Hassan, frá Michigan og New Hampshire, samsinntu því.Repúblikanaþingmaðurinn Lisa Murkowski hefur látið málefni Grænlands sig miklu varða og kvaðst miður sín vegna hótananna og þess uggs sem hann hefði kveikt í br