Lagt er til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól húsnæðislána verði gerð varanleg í drögum að frumvarpi sem eru í samráðsgátt stjórnvalda. Hún hefur síðastliðin ár alltaf verið framlengd eitt ár í senn. Sú breyting er gerð að einstaklingum verður framvegis leyft að nýta heimildina í tíu ár, eða að hámarki samtals 120 mánuði. Lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar til greiðslu húsnæðislána voru sett til bráðabirgða árið 2014 til að bregðast við skuldavanda heimilanna og tugir þúsunda hafa nýtt sér þá leið. Hámarksfjárhæð til ráðstöfunar séreignasparnaðar hvers einstaklings verði 500 þúsund krónur, sem hækki árlega í samræmi við vísitölu neysluverðs, í fyrsta sinn 1. janúar 2027. Sérstakt lægra viðmið fyrir hjón eða sambúðarfólk er ekki að f