Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hafnbann á olíu tekið að bíta á ferðir erlendra flugfélaga

Bandaríkin hafa sett hafnbann á olíuflutninga til Kúbu sem hefur orðið til þess að erlend flugfélög hafa dregið úr ferðum þangað. Eldsneyti fyrir flugvélar er að verða uppurið vegna hafnbannsins og það er tekið að hafa áhrif á ferðir þeirra rúmlega tugs erlendu flugfélaga sem til Kúbu fljúga. Mörg þeirra eru tekin að sækja eldsneyti annarra eyja í Karíbahafi. Bandaríkjastjórn hefur hótað hverju því landi háum tollum sem flytur olíu til Kúbu með það að markmiði að koma þarlendum stjórnvöldum að samningaborðinu varðandi stjórnarskipti. Háttsettir stjórnarliðar hafa sagt núverandi stjórnvöld ógn við öryggi Bandaríkjanna. Flugfélagið Air Canada ætlar að hætta öllum ferðum til landsins og tilkynnti í kvöld að það hygðist flytja þrjú þúsund farþega þaðan. Kanadamenn sækja mikið í strandlífið á K
Hafnbann á olíu tekið að bíta á ferðir erlendra flugfélaga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta