Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjarðarheiði lokað vegna veðurs og ófærðar

Fjarðarheiði hefur verið lokað vegna ófærðar og veðurs samkvæmt tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Reynt verður að opna á hefðbundnum tíma í fyrramálið en það eru erfiðar aðstæður til aksturs um heiðina, blint og ökumenn hafa fest bíla sína.Hálkublettir eru á Mosfellsheiði og í Kjósarskarði. Krapi er á Fagradal, Jökuldal og Hliðarvegi en hálka er víða. Ófært er á Vatnsskarði eystra, Öxi og Breiðdalsheiði. Þæfingur eða jeppafæri er á Dynjandisheiði og hálka eða hálkublettir á flestum vegum á Vestfjörðum og Norðausturlandi.Þæfingur er á Vopnafjarðarheiði en krapi er á, Hófaskarði, Hólaheiði og Raufarhafnarvegi og eitthvað um snjóþekju á Háreksstaðaleið. Hálka og éljagangur er á Öxnadalsheiði og víðar á Norðurlandi, krapi og éljagangur er í Almenningum og hvasst, og eitthvað er um hálkubletti
Fjarðarheiði lokað vegna veðurs og ófærðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta