Eldur kviknaði í bifreið við fjölbýlishús í Bakkahverfinu í Breiðholti í kvöld. Slökkviliði barst tilkynning um eldinn um klukkan ellefu og þá voru tveir dælubílar sendir á vettvang.Eldurinn hafði borist í annan bíl að sögn varðstjóra sem segir slökkvistarfi nánast hafa lokið rétt fyrir miðnættið. Þá var annar dælubíllinn sendur til baka. Óttast var að eldurinn bærist í blokkina en svo fór ekki.Lögregla tekur við rannsókn brunans.RÚV / Ragnar Visage