Margir hafa síðustu daga beðið gervigreindina ChatGPT um að búa til skopmynd af sér byggða á öllu sem hún veit um viðkomandi. Þá grípur hún tækifærið og biður um fleiri upplýsingar, til dæmis ljósmyndir, með þeim rökum að skopmyndin verði nákvæmari.Þar lætur hún ekki staðar numið heldur vill hún líka vita við hvað fólk starfar og helstu áhugamál. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, hvetur til árvekni og að fólk hugsi um hvað fyrirtækið sé að gera við þessar upplýsingar.„Það sem við höfum séð er að oft eru upplýsingar nýttar, í það sem fólk heldur að sé í einhverjum leik. En þessi fyrirtæki eru ekki að leika sér, þau eru í harðsvíruðum viðskiptum. Þau eru að nota þessar upplýsingar til einhvers,“ segir Helga.