Íslensk-evrópska verslunarráðið, Félag atvinnurekenda, sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, Alþjóða- og Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík, Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og utanríkisráðuneytið efna til málþings um þá vinnu sem farin er af stað við einföldun Evrópuregluverksins, áhrif hennar á EES-samninginn, íslenskt atvinnulíf og eftirlit ESA með reglunum.