Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Spænskumælandi Kanar fagna Bad Bunny en forsetinn ekki

Hálfleikssýning Grammy-verðlaunahafans og einnar frægustu poppstjörnu heims um þessar mundir, Bad Bunny frá Púertó Ríkó, á Ofurskálinni í nótt skipti fólki í fylkingar. Þótt sýningin hafi trekkt að tugmilljónaáhorf skiptu einhverjir um rás og fylgdust í staðinn með hálfleikssýningu Kid Rock í boði Turning Point USA, samtaka Charlies heitins Kirks.Bad Bunny hefur neitað að enskuvæða tónlist sína og söng á spænsku í nótt. Ingunn Lára Kristjánsdóttir samfélagsmiðlafréttamaður bendir á að hátt í 45 milljónir Bandaríkjamanna tali spænsku á heimilum sínum.„Þetta er alveg hátt í 13% Bandaríkjamanna og í rauninni í fyrsta sinn í Ofurskálinni sem þeir sjá risasýningu einungis á spænsku,“ segir Ingunn Lára. „Þau hljóta að hafa fagnað því og líka að fá að sjá þessar táknmyndir rómönsku Ameríku.“
Spænskumælandi Kanar fagna Bad Bunny en forsetinn ekki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta