Stofnandi og framkvæmdastjóri Defend Iceland bjó til gervigreindarútgáfu af rödd Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Hann bjó til gervi-Höllu fyrir öryggisráðstefnu og til að sýna hversu auðvelt er að falsa raddir annarra. Umræða hófst eftir að lögregla frétti af fölskum símtölum í nafni fyrrverandi ríkislögreglustjóra.