Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Boðar breyttar reglur um fjöldaflóttamenn

Dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram frumvarp til að koma í veg fyrir að Úkraínumenn sem hafa fengið hæli hér á landi á grundvelli laga um fjöldaflótta fái sjálfkrafa ótímabundið dvalarleyfi. Fjöldi Úkraínumanna á Íslandi hefur tífaldast á undanförnum fjórum árum, eða allt frá innrás Rússa.Mörg Evrópuríki opnuðu landamæri sín fyrir flóttamenn frá Úkraínu þegar Rússar réðust á landið í febrúar 2022. Um sex milljónir Úkraínumanna hafi flúið heimili sín og þar af hafa tæplega 6.400 sótt um hæli hér á landi frá stríðsbyrjun. Ríflega 60 prósent allra hælisumsókna í fyrra komu frá Úkraínu eða tæplega 1.100 af rúmlega 1.700 umsóknum. Fjöldi Úkraínumanna með búsetu á Íslandi hefur nærri tífaldast á undanförnum fjórum árum - úr tæplega 470 í rúmlega 4.200. Umsóknir Úkraínumanna þurfa ekki að fara
Boðar breyttar reglur um fjöldaflóttamenn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta