Ólíklegt er að skjálftahrina við Eldey á Reykjaneshrygg tengist eldvirkni á Sundhnúksgígaröðinni með beinum hætti. Ekkert bendir til þess að eldgos við Eldey sé á næsta leiti og erfitt er að segja til um hvort og hvenær gýs aftur í Sundhnúksgígum.Um 600 skjálftar hafa mælst við Eldey í hrinunni sem hófst um hádegisbilið í gær. Sá stærsti var 3,4 að stærð en alls hafa um 5 skjálftar mælst yfir 3 að stærð í þessari hrinu.Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, var í Speglinum.„Ég held alveg örugglega að það séu engar beinar tengingar. Það er mjög langsótt að halda því fram að kvika flæði þar frjálst á milli. En það eru örugglega tengingar sem tengjast spennubreytingum í jarðskorpunni.,“ segir Benedikt.100 til 150 ár hafa liðið milli eldgosa við Eldey og þar gau