Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Drífa Snædal gengur aftur til liðs við VG

Drífa Snædal, talskona Stígamóta, hefur ákveðið að skrá sig aftur í Vinstrihreyfinguna – grænt framboð til að styðja Auði Alfífu Ketilsdóttur. Auður hefur gefið kost á sér í 2. sæti VG í Reykjavík.Drífa sagði sig úr VG árið 2017 vegna óánægju með að flokkurinn fór í stjórnarmyndunarviðræður við Sjálfstæðisflokkinn. Hún greindi frá ákvörðun sinni um að ganga aftur til liðs við flokkinn í færslu á Facebook síðdegis.„Jæja, þar kom að því að ég ákvað að skrá mig aftur í VG og það af góðu tilefni. Það verður dásamlegt að búa í borg þar sem Fífa er minn fulltrúi við stjórnvölinn. Frestur til að skrá sig rennur út á morgun.“Drífa Snædal sagði sig úr VG 2017.RÚV / Ragnar Visage
Drífa Snædal gengur aftur til liðs við VG

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta