Ghislaine Maxwell neitaði að svara spurningum og nýtti tækifærið til að biðja enn og aftur um náðun þegar hún kom fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum fyrr í dag. Þetta segja þingmenn nefndarinnar sem rannsakar kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein.Maxwell kom fyrir nefndina á fjarfundi úr fangelsi í Texas, þar sem hún afplánar 20 ára fangelsisdóm fyrir mansal og fyrir að tæla stúlkur undir lögaldri til fylgilags við Epstein.James Comer, þingmaður Repúblikana og formaður nefndarinnar, segir vonbrigði að Maxwell hafi borið fyrir sig fimmta viðauka stjórnarskrárinnar - þingmenn hafi margar spurningar um glæpi hennar og Epsteins.Ghislaine Maxwell svaraði ekki spurningum þegar hún kom fyrir þingnefnd sem rannsakar kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein fyrr í dag. Lögmaður segir hana reiðubúna að le