Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir það hafa verið vont að sjá nýjustu verðbólgutölur. Þær séu hins vegar vegna einskiptisaðgerða. Hún segir hlutina á réttri leið og nefnir t.a.m. að ríkisskuldir hafi lækkað um 10% síðan ríkisstjórnin tók til starfa.