Bókin Fellihýsageymslan segir frá frændsystkinunum Þórunni og Santiago sem flækjast inn í atburðarás þar sem fellihýsi, eðlur og forseti Íslands koma við sögu. HÉLT AÐ SKRIF VÆRU BARA EITTHVAÐ TIL AÐ GERA Á EFTIRLAUNAÁRUM Mörtu fannst gaman að skrifa þegar hún var í skóla en sá ekki fyrir sér að hún myndi skrifa bók, alla vega ekki fyrr en hún hætti að vinna. Hún rekur Kaffibrennsluna Valeríu í Grundarfirði og rekst þar á ýmsa skemmtilega karaktera.„Við erum búin að stilla kaffihúsinu svolítið upp þannig að við getum auðveldlega átt samskipti við fólkið sem er að koma.“ SKEMMTILEGRA AÐ SKRIFA FYRIR KRAKKA EN FULLORÐNA Mörtu var ráðlagt að skrifa söguna frekar fyrir fullorðna. Hún reyndi það í heilt ár en áttaði sig þá á því að sagan ætti að vera fyrir krakka.„Þarna var þetta ráð til