Strandverkfræðingur segir landrof sem orðið hefur í Reynisfjöru tilkomið vegna óvenjulegrar og stífrar austanáttar. Stór bakki hrundi úr hlíðum Reynisfjalls, alveg að viðvörunarskiltum við fjöruna.„Skýringarnar á því eru að það eru þrálátar austanáttir sem hafa verið í allan vetur. Þungar oft með mjög háar öldur. Og það eru austanáttirnar sem flytja sand meðfram suðurströndinni til vesturs,“ segir Sigurður Sigurðarson, strandverkfræðingur hjá Vegagerðinni.„Yfirleitt eru ráðandi áttir suðvestanáttin, sem flytur sandinn til austurs. En núna í vetur hefur þetta verið frábrugðið þessu og það hafa verið austanáttir ráðandi. Sem er óvenjulegt.“Hækkun yfirborðs sjávar eigi þarna engan þátt.„Það held ég að sé alveg hægt að fullyrða. Reyndar er því öfugt farið á suðurströndinni víða af því þar hefu