Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna stunguárásar

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 13. febrúar í tengslum við stunguárás í miðborg Reykjavíkur um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Árásin varð fyrir utan skemmtistað í miðborginni um klukkan hálf tólf fyrir miðnætti á laugardagskvöld. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en árásarmaðurinn flúði af vettvangi.Þrír voru handteknir vegna málsins um helgina en tveimur hefur verið sleppt.Elín Agnes Eide, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglu, sagði að engin tenging virtist vera milli árásarmannsins og mannsins sem hann réðst á. Áverkar hans reyndust ekki vera lífshættulegir og var hann útskrifaður af sjúkrahúsi í gær.
Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna stunguárásar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta