Ásgeir Trausti er einn af farsælustu tónlistarmönnum landsins og hefur síðan 2014 fengið mikið lof heima og erlendis fyrir plötur sínar In the silence, Afterglow, Bury the Moon og Time On My Hands frá árinu 2022.Nú eru breytingar í farvatninu og ný plata væntanleg í vikunni sem er sú fimmta frá honum og hefur fengið nafnið Julia. Í fyrsta sinn á ferlinum hefur hann skrifað textana alfarið sjálfur. Niðurstaðan er íhugult verk, gegnsýrt af nostalgíu, þar sem Ásgeir veltir fyrir sér eftirsjá og vonum sínum fyrir framtíðina. Að venju sækir hann innblástur í eldra tónlistarfólk eins og Daniel Lanoise, Leonard Cohen og nýrri spámenn eins og Aldous Harding og Dina Ögon.Ásgeir mætti í hljóðstofu til Atli Más Steinarssonar og ræddi ferilinn og plötu vikunnar á Rás 2.