Anas Sarwar, leiðtogi Verkamannaflokksins í Skotlandi, er sá hæst setti innan flokksins sem kallar eftir því að Keir Starmer forsætisráðherra segi af sér. Morgan McSweeney, starfsmannastjóri og aðalráðgjafi Starmers, sagði af sér í gær.Það hefur gustað um Starmer frá því að í ljós kom að hann vissi af sambandi Peters Mandelson við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein þegar hann skipaði Mandelson sendiherra.McSweeney sagðist í gær bera ábyrgð á skipan Mandelson. „Þegar ég var spurður, þá ráðlagði ég forsætisráðherranum að skipa hann. Ég tek ábyrgð á þeim ráðleggingum,“ sagði í yfirlýsingu McSweeney.Sarwar boðaði til blaðamannafundar í Glagow í dag og hafði efnið spurst út áður. „Þetta er ekki hvorki auðvelt né sársaukalaust,“ sagði Sarwar áður en hann kallaði eftir því að Starmer segi af s