Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjávarbotn skelfur enn við Eldey

Enn skelfur sjávarbotn við Eldey á Reykjaneshrygg. Nokkuð hafði dregið úr virkni undir miðnætti en hún færðist í aukana á ný á þriðja tímanum. Nokkrir skjálftar af stærðinni tveir til þrír mældust þegar leið á nóttina. Rétt fyrir hádegi varð skjálfti þrír að stærð, einn sá stærsti í hrinunni.Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvásérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir um 400 skjálfta hafa orðið í þessari hrinu sem standi enn yfir. Skjálftarnir séu ekki öflugir, flestir að stærð einn til tveir að stærð, þó hafi fjórir að stærðinni þrír eða stærri orðið. Sá stærsti varð rétt fyrir klukkan 17 í gær. Hann var 3,4 að stærð.En eru einhver merki um gosóróa?„Nei við sjáum engin merki um það hjá okkur,“ segir Bryndís.Hún segir erfitt að segja til um hvort skjálftar á þessu svæði séu afleiðing af spen
Sjávarbotn skelfur enn við Eldey

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta