Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur enn að því að taka skýrslur af vitnum og fara yfir myndefni vegna banaslyss sem varð á Miklubraut í Reykjavík á fimmtudagskvöld.Alvarlegt umferðarslys varð á Miklubraut í Reykjavík rétt fyrir miðnætti á fimmtudagskvöld þegar bíll, sem ekið var austur Miklubraut, hafnaði á stólpa Vegagerðarinnar, til móts við hús Hjálpræðishersins. Tveir sautján ára drengir voru í bílnum og annar þeirra lést. Hann var farþegi í bílnum.„Við erum með tvo menn sem eru að rannsaka þetta hjá mér og svo er tæknideildin líka að rannsaka sinn hluta. Rannsóknin gengur bara ágætlega á þessu hörmulega slysi,“ segir Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „GRÍÐARMIKIL RANNSÓKN Í KRINGUM ÞETTA SLYS“ Ökumaðurinn slasaðist töluvert og var fluttur