Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjö slökkviliðsstöðvar sem ein liðsheild

Umdæmi Brunavarna Árnessýslu liggur frá Bláfjallaafleggjara að Þjórsá, að Kerlingafjöllum niður að sjó til Þorlákshafnar. Sjö slökkviðliðsstöðvar í átta sveitafélögum vinna sem ein liðsheild.„Við lítum á Selfoss sem miðjustöð með mesta búnaðinn og sendum mannskap á milli sem stuðning í útköllum“ segir Pétur Pétursson slökkviliðsstjóri.Æfingar eru samræmdar og áhersla lögð á að starfsmenn séu færir á allan tiltækan búnað og geti gripið í hann hvar sem er.„Hugsunin er að fólk fái sömu kennslu og kynnist innbyrðis á æfingum og það skiptir verulegu máli“ segir Eyjólfur Óli Jónsson varðstjóri á Laugarvatni. „Munurinn á milli útstöðvanna og stöðvarinnar á Selfossi er í raun ekki mikill, það eru bara fleiri tæki á Selfossi“.Fyrirhugað er að bæta áttundu stöðinni við að Borg í Grímsesi.
Sjö slökkviliðsstöðvar sem ein liðsheild

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta