Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búna að missa klefann.