Einn er enn í haldi lögreglu vegna hnífsstunguárásar í miðborg Reykjavíkur á laugardagskvöld.Þrír voru handteknir vegna málsins í gær. Tveimur hefur verið sleppt, segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglu.Árásin varð fyrir utan skemmtistað í miðborginni um klukkan hálf tólf fyrir miðnætti. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en árásarmaðurinn flúði af vettvangi. ÁÐUR KOMIÐ TIL KASTA LÖGREGLU Að sögn Elínar Agnesar virðist ekki vera tenging á milli þeirra tveggja. Sá sem varð fyrir árásinni er á þrítugsaldri og var útskrifaður af spítala í gærmorgun. Áverkar hans reyndust ekki lífshættulegir.Rannsókn er í fullum gangi og lögreglan telur sig hafa einhverja mynd af tilefni árásarinnar.Árásarmaðurinn verður yfirheyrður