Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kosningaloforð um leikskóla óraunhæf næstu ár eða áratugi

„Það er ekki raunhæft og mun ekki verða raunhæft á næstu árum, jafnvel áratugum,“ segir Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla, um það hvort raunhæft sé að bjóða öllum börnum leikskólapláss frá 12 mánaða aldri. Sigurður ræddi leikskólamál á Morgunvaktinni á Rás 1, ekki síst kröfur allra leikskólastjórnenda í Reykjavík um aðgerðir vegna mönnunarvanda, sem félag stjórnenda tekur undir.Hann segist þegar farinn að heyra kosningaloforð um fjölgun leikskóla og að öllum börnum verði komið inn. „Fyrir ykkur kjósendur, vitiði það, þetta er ekki hægt. Þó þú kallir þetta fyrirtækjaleikskóla eða hvað sem það heitir. Það bjargar engu, það breytir engu. Við þurfum kennarana til þess að starfa í þessum skólum. Skóli er ekki húsnæði. Skóli er stofnun með starfsfólki og börnum.“
Kosningaloforð um leikskóla óraunhæf næstu ár eða áratugi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta